Westfjarðarpían tjáir sig

laugardagur, júní 11, 2005

Skemmtileg upphringing

Ég fékk nokkuð sérstaka símhringingu í nótt. Það var hann Gústi minn sem á það nú til að hringja svona stöku sinnum þegar hann er kominn við skál... ;o) Hann og Gunnar Bragi hafa víst verið að velta því fyrir sér að kíkja á Papaball í Súðavík á næstu helgi og voru að reyna að fá mig til þess að koma með þeim. Ég sagði þeim þá að það væru nú önnur plön í gangi með Hvammstanga þar sem ég hafði hugsað mér að kíkja á hana Sigrúnu mína þessa helgi... Gústi hvatti mig þá eindregið til þess að kíkja á Riis á laugardagskvöldið þar sem til stæð að leika fyrir dansi þetta kvöldið! Svona er þetta aleg týpískt!!! Annað hvort hefur maður ekkert að gera eða að maður getur ekki valið á milli þeirra óteljandi möguleika sem bjóðast!

1 Comments:

At 13/6/05 19:51, Blogger Aðalheiður said...

Af hverju átt þú svona skemmtilegt sumar, ég á bara vinnusumar! Finnst ég alltaf vera í vinnunni :( Gott að einhver er að skemmta sér! :)

 

Skrifa ummæli

<< Home