Westfjarðarpían tjáir sig

sunnudagur, júní 08, 2008

Gúrkutíð...

Jæja ég er búin að vera voða löt eitthvað við að skella inn línum hér í vetur og reikna víst ekki með því að einhver jar breytingar muni verða þar á nú á næstunni.

Nú styttist óðum í hið langþráða sumarfrí. Ég er búin að plana hluta þess og finnst allt í einu eins og það sé ekki eins langt og ég hélt í fyrstu.

*Útskrift hjá pabba 14. júní.
*Ættarmót hjá Úlfari helgina 20.-22. júní
*22. júní-6/7 júlí ætla ég að vera í sælunni fyrir vestan
*7.-19. júlí ætlum við Úlfar að vera á ferðalegai um landið með stoppi í brúðkaupi á Kópaskeri 12. júlí.
*25.-27. júlí er ættarmót á Drangsnesi

Þannig að þið sjáið að það verður nóg að gera hjá mér í sumar :o) Hlakka samt mest til þess að geta legið aðeins í leti næstu vikuna og tekið aðeins í gegn hér á heimillinni þar sem allt að verða orðið frekar sjabbí ;)

2 Comments:

At 9/6/08 10:20, Blogger Guðbjörg said...

Ooohhh það er svooo ljúft að vera kominn í frí...gæti alveg vanist þessu ;O)
Vonandi eigum við eftir að sjást eitthvað í fríinu...ég stefni allavega á að kíkja í sæluna fyrir vestan =O)
Kveðja frá Skagaströnd

 
At 3/7/08 20:38, Anonymous Nafnlaus said...

Það var alveg frábært að hafa þig hérna heima:-)
skemmtu þér svo bara vel á flakki um landið:-)

 

Skrifa ummæli

<< Home