Westfjarðarpían tjáir sig

sunnudagur, júlí 06, 2008

Sumarið er tíminn

... þegar kvenfólk springur út og þær ilma af dulúð og sól, ójá.

Já á þessum bæ er þess sko sannarleg notið að vera í sumarfríi! Ég er búin að vera í sælunni hér fyrir vestan í heilar tvær vikur og hef sko sannarlega notið þess í botn. Það er nefnilega alveg æðislegt að geta verið svona í fríi og notið lífsins aðeins, þetta er allavega eitthvað sem ég gæti alveg vanist :)

Nú er stefnan tekin á frekari ferðalög. Úlfar kom á föstudaginn og reiknum við með því að leggja af stað í norðurátt þar sem við erum að fara í brúðkaup á Kópaskeri á næstu helgi. Eftir brúðkaupið ætlum við síðan að halda í austurátt og klára hringinn :) Þannig að það verður bara heilmikið ferðalag á okkur skötuhjúunm næstu tvær vikurnar.

1 Comments:

At 7/7/08 12:11, Blogger Guðbjörg said...

Ég geri ráð fyrir að þið kíkið á Skagaströnd svo ég stend hér á haus við að undirbúa komu ykkar...baka brauð og kökur og marinera kjöt og fisk!!!
Hlakka til að sjá ykkur =O)

 

Skrifa ummæli

<< Home