Westfjarðarpían tjáir sig

fimmtudagur, júlí 12, 2007

Það nýjasta...

Jæja það er voða lítið að frétta af mér þessa dagana... Er bara búin að vera að sleikja sólina hérna á Ísafirði alltaf þegar ég hef haft tækifæri til. Síðan hef ég að sjálfsögðu verið að vinna á pósthúsinu ásamt því að slá kirkjugarðinn í Hnífsdal með Heiðu systir...

Er búin að fara í eina helgarferð með Heiðu systir. Fórum í Flókalund og gistum þar eina nótt. Keyrðum síðan útt á Rauðasand og áttum þar dýrlegan dag í meiriháttar veðri... Seinni nóttina gistum við svo á Tálknafirði. Fórum þar í sund og síðan í Selárdal þar sem við skoðuðum safnið hans Samúels.
Einnig sótti ég Dýrfirðinga heim á Dýrarfjarðardögum á þarsíðustu helgi, gisti meirað segja í tjaldi á Þingeyri með Úlfari :o)
Á síðustu helgi skellti ég mér síðan á markaðsdaga í Bolungarvík með mömmu og pabba og keypti mér þar tvær sultukrukkur sem ég á enn eftir að bragða á... Um kvöldið fór ég síðan aftur í víkina með henni Bryngerði á djammið :o)
Nú eru einungis rúmar þrjár vikur eftir að dvöl minni hér í faðmi fjallanna bláu og ætla ég mér að njóta þess tíma út í ystu æsar... enda af nógu að taka hér....
Yfir og út!

3 Comments:

At 12/7/07 23:14, Blogger Sigrún said...

Hæ, og til hamingju með útskriftina. Ég á ennþá eitt ár eftir, en það er bara eitt :) ég er mjög löt að hafa samband, en ég hugsa oft til þín :) en ég á eftir að kíkja á þig þegar ég fer í bæinn í haust, ertu ekki annars að fara að kenna þar??

 
At 14/7/07 11:44, Blogger Stina said...

Hæ sæta, mikið sakna ég þín...
Gaman að heyra að þu hafir keypt þér sultur, allt er hey í harðindum og fyrst þú getur ekki haft okkur alvöru sulturnar er gott að þú fékkst staðgengla, hehe :O)
Sjáumst skvísa, vona að þú hafir það gott.

 
At 16/7/07 18:24, Anonymous Nafnlaus said...

"...með Heiðu systir..."
og svo aftur "með Heiðu systir..."
Hmmm, er þetta kennarinn sjálfur sem beygir svona?

Tíhí, Sigrún sagði mér að gera athugasemd :o)

 

Skrifa ummæli

<< Home