Westfjarðarpían tjáir sig

föstudagur, maí 19, 2006

Komin heim

Vildi bara láta vita að ég er enn á lífi og komin heim til fjallanna minna fögru. Hef lítið gert síðan ég kom vestur annað en að slappa af, lesa í bók sem ég fékk í afmælisgjöf og sitja hjá henni ömmu minni á sjúkrahúsinu. Skrítið að mér finnst ég vera farin að ókyrrast. Það á ekki beint við mig að hafa ekki meira að gera, erfitt að slæpast bara... Kannski ég fari bara að lesa danskar pokket bækur til að undirbúa mig fyrir næsta vetur ;o)

1 Comments:

At 19/5/06 23:00, Anonymous Nafnlaus said...

ég átti nú eftir að kveðja þig og geri það hér með, takk fyrir veturinn og hafðu það gott þarna á mörkum hins byggilega ;) segi nú bara svona, kveðja úr sælunni á Akureyri, Alda

 

Skrifa ummæli

<< Home