Westfjarðarpían tjáir sig

mánudagur, nóvember 13, 2006

Gaman gaman

Ég komst loksins suður um hádegi á laugardag. Átti alveg hreint æðislegan tíma með Úlfari þó svo að hann væri alltof stuttur! Fór líka í skírn hjá Katrínu systur þar sem litli gaurinn hennar fékk nafnið Númi Hrafn :o) Stoppaði reyndar stutt við þar sem ég var á leið á árshátíð með Úlfari og vinnufélögum hans. Við fengum ágætis mat og fórum síðan á ball með Sálinni á NASA. Ballið var alveg frábært og við dönsuðum alveg heilann helling :o)
Í gær kíktum við síðan saman í nýja IKEA, sem er reyndar alltof stórt fyrir minn smekk... Fengum okkur síðan borgara á American Style MMmmmmm... Stuttu síðar var ég flogin á norðlægari slóðir :o(
En núna eru bara 9 dagar í jólafrí, JIBBÍ!!!!

1 Comments:

At 14/11/06 12:36, Anonymous Nafnlaus said...

9 dagar í jólafrí... hmmm.... vildi að ég gæti sagt það sama. :(
Mikið hlakka ég til næsta vetur. :)

 

Skrifa ummæli

<< Home