Westfjarðarpían tjáir sig

föstudagur, nóvember 10, 2006

Veður

Ég ætlaði að vera búin að eyða þessum degi í höfuðborg landsins. Ráfa á milli búða í kringlunni og kíkja í hið nýja IKEA. Á þessum tíma hafði ég hugsað mér að kúra bara upp í sófa með Úlfari og hafa það næs, en NEI!!! Ég er föst á Akureyri... sit ein í sófanum mínum og horfi á mis gott sjónvarpsefni, drekk pepsi, borða möndlur og vonasti eftir því að tíminn verði fljótur að líða... athugun klukkan 7.45 í fyrramálið og vonast ég eftir að komast með fyrstu vél!!!

2 Comments:

At 10/11/06 21:27, Blogger Guðbjörg said...

æi, ég skil þig...það er ekki gaman að sitja einn í sófanum og horfa á ömurlegt sjónvarpsefni ...maður verður enn meira einmana:(

 
At 10/11/06 23:06, Anonymous Nafnlaus said...

Hæ!

Kíki hérna oft en kvitta aldrei.. en batnandi mönnum er best að lifa, er þaggi annars!? :)
En ég sá að þú ert á leiðinni í paradísina, hana Reykjavík!! Það væri gaman að sjá þig aðeins, ef að þú hefur einhvern lausann tíma...

En allra bestu kveðjur frá okkur mæðgunum, Steinunn & IðunnLilja 3ára!!:)

 

Skrifa ummæli

<< Home