Westfjarðarpían tjáir sig

þriðjudagur, janúar 09, 2007

Nýtt ár, nýr tími... nýtt eitthvað meira...

Já það er víst orðið nokkuð langt síðan ég lét heyra í mér síðast. Jólin eru búin og jólafríið því miður líka... Var að vinna á fullu á pósthúsinu fyrir jólin sem var auðvitað bara mjög gaman. Síðan eyddi ég jólunum bara í faðmi fjölskyldunnar á Ísafirði. Fór síðan suður 30. des og var þar á áramótunum og þar til í gær þegar ég flaug hingað norður til Akureyrar. Þó svo að áramótin hafi verið allt öðruvísi en nokkurn tíman fyrr þá var bara mjög gaman. Við Úlfar borðuðum hjá mömmu hans og skutum síðan upp flugeldum með Jóni Ásgeiri. Síðan fórum við á ball í Grafarholti sem var meira en lítið skrítið... En ég er bara farin að hlakka til að fá ástina mína til mín aftur :o)

2 Comments:

At 9/1/07 21:29, Blogger Guðbjörg said...

Það er alltaf gaman af öllu nýju...hvort sem það er nýtt dótt eða ný upplifun...njóttu augnabliksins=O)

 
At 10/1/07 19:55, Anonymous Nafnlaus said...

Ertu að meina að fá mig í heimsókn? ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home