Westfjarðarpían tjáir sig

þriðjudagur, febrúar 27, 2007

Útskrift

Jæja þá er ég komin aftur norður eftir góða helgi í borginni. Stoppa reyndar stutt þar sem ég er á leið vestur á Ísafjörð á morgun þar sem ég mun vera fram á föstudag. Á laugardaginn er síðan hin árlega árshátíð Háskólans og verður það í síðasta skipti sem ég mun sækja hana. Eftir helgi er ég síðan á leið til Finnlands þar sem ég mun taka þátt í samnorrænu verkefni sem lýtur að fjölmenningu í skólum.

Síðast en ekki síst vil ég óska henni mömmu minni TIL HAMINGJU með útskriftina á laugardaginn!!! Takk líka fyrir frábærann dag :o)

1 Comments:

At 2/3/07 08:16, Blogger Stina said...

Það er nú meiri flækingurinn á þér stelpa! Veit samt fyrir víst að þú munt staldra hér við og njóta árshátíðarinnar. Ég er búin að kaupa gerviaugnhár og semja við mömmu...sem reyndar var mjög auðvelt. :O)
Kv. Turner spennta

 

Skrifa ummæli

<< Home