Westfjarðarpían tjáir sig

fimmtudagur, janúar 12, 2006

Í dagsins önn

Peysan er að verða tilbúin og þá er ég að vonast eftir að fá geðheilsu mína fljótlega aftur. Annars þá er það hest að frétta að Stínu gekk bara svona glimrandi vel í EVÍ :o) Án efa hafa hlýjar hugsanir og góðir straumar haft þar talsvert að segja... eða kannski er hún bara svona klár stelpan :o) (reikna fastlega með að það sé það síðast nefnda!) Sendi henni bara hér með mínar bestu hamingjuóskir!!!

---

Annars er ekki laust við að reiðin sé soldil mikil hjá manni þessa daganna vegna blaðaskrifa DV. Það er ekki eins og að þetta sé í fyrsta skipti sem þeir koma með annað eins á forsíðunni en nú hefur öllum endanlega misboðið. Ég tel að bezta ráð okkar til þess að mótmæla aðferðum þeirra sé einfaldlega að sleppa því að kaupa blaðið!!!

1 Comments:

At 13/1/06 11:21, Anonymous Nafnlaus said...

Hæhæ sæta...Ég vildi bara láta þig vita að ég kemst ekki norður í Menningarferðina um næstu helgi vegna grunnskóla hittings hjá mér...En anyway, góða skemmtun ;)
Kveðja Kamilla

 

Skrifa ummæli

<< Home