Smá update
Jæja ég lofaði víst frekari fréttum af útskriftinni svo ég ákvað að henda hér inn nokkrum línum. Dagurinn fyrir norðan var hreint frábær, fannst eiginlega bara mjög gott að sleppa við allt veislustandið sem hinir voru að standa í og geta þess í stað bara notið dagsins. Um kvöldið fórum við fjölskyldan saman út að borða og fengum öll ágætis máltíð :o) Eftir matinn var kíkt í partý til Guðbjargar og síðan Sonju. Sonja hafði reyndar slegið tvær flugur í einu höggi og gift sig um daginn líka :o) Eftir partý kíktum við bara í bæinn og skemmtum okkur fram á rauða nótt! Á sunnudag skelltum við Úlfar okkur í sund áður en hann lagði af stað austur og við fjölskyldan vestur. Vorum síðan að renna í hlað hér á Seljalandsveginum um ellefu leitið.
Líf mitt hefur ekki breyst mikið á þessari viku sem ég er búinn að bera "nafnbótina" kennari... skelli hér inn nokkrum myndum frá deginum