
Já ég hef alltaf verið nokkuð hörundsár fyrir gagnrýni á minn fagara heimabæ og höfuðstað Vestfjarða, Ísafjörð! En þetta síðasta sem ég fékk að heyra sló nú allt út.
Ísafjörður verður lagstur í eyði fyrir 2015!
sagði einn við mig og glotti. Auðsjáanlega fyrir löngu búin að fatta hvað þyrfti til að æsa mig upp. Og að svo búnu færði hann rök fyrir máli sínu.
Sjáðu til. Það sem styður þetta bezt er það hvað allt er orðið gamalt þarna. Þið eruð með Gamla bakaríkið, Gamala apótekið, Gamla sjúkrahúsið og svo mætti lengi telja... Er eitthvað nýtt að gerast þarna hjá ykkur! Er í alvöru einhver uppbygging í gangi þarna???
Þó að viðkomandi hafi að ég held, eins og áður segir, einungis verið að koma með þessar athugasemdir til þess að pirra mig þá hafa þær fengið mig til nokkurar umhugsunar. Er eitthvað að gerast þarna heima? Er í raun og veru verið að gera eitthvað til að byggja bæinn upp? Þá myndi fróðir menn benda á hið nýja háskólasetur og segja að hér væri komin vísir að nýjum háskóla á Vestfjörðum... En ég er ekki alveg jafn ginkeypt fyrir þessari hugmynd. Hvað koma í raun og veru mörg störf með þessu? Og hvar á þetta háskólamenntaða fólk allt að fá vinnu að loknu námi... er eitthvað í boði fyrir það?
Máltækið góða á alltaf jafn vel við, að fjarlægðin geri fjöllin blá, því ég virðist aldrei hafa verið jafn stolt af uppruna mínum og minni heimabyggð en eftir að ég flutti þaðan... skrítið finnst ykkur kannski... En ætli maður fari ekki að sjá hlutina í öðru samhengi þegar horft er á þá í örlítilli fjarlægð, enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefura ... en ég vill samt ekki trú að ég sé að missa minn heitt elskaða Ísafjörð! Það verður allavega einhvern tíman miklu seinna en 2015!!!